Quantcast
Channel: Útilegukortið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 112

SAUÐÁRKRÓKUR

$
0
0

saudarkrokur5-300x199

Tjaldsvæðið á Sauðárkróki er staðsett á Flæðunum við Sundlaug Sauðárkróks.
Í Skagafirði er margt hægt að gera í fríinu. Vinsælt er að heimsækja söfn og sögustaði, fara í útreiðatúr eða sjá hestasýningar. Víða er hægt að renna fyrir fisk, fara í gönguferðir og fjallgöngur í fallegri náttúru og slaka svo á í sundlaugum og heitum pottum á eftir. Fljótasigling á jökulánum eða sigling útí Drangey er upplifun sem seint gleymist, sem og að spila golf í góðra vina hópi. Á vorin er notalegt að sitja í kyrrð við spegilsléttan vantsflöt og fylgjast með tilhugalífi fuglanna.

Aðstaðan
Nýtt þjónustuhús er við tjaldsvæðið þar sem er heitt og kalt vatn, sturtur, salerni, þvottavél og aðgengi fyrir fatlaða. Hægt er að kaupa rafmagn og losa ferðasalerni.þ Stutt er í helstu þjónustu s.s. sundlaug, verslanir, söfn, veitingastaði, golfvöll o.þ.h.

Útilegukortið gildir fyrir gesti ekki á skipulögð íþróttarmót, Landsbankamótið 22-25 júní og Króksmótið 10-13 ágúst.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 112