Quantcast
Channel: Útilegukortið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 112

REYÐARFJÖRÐUR

$
0
0

Tjaldsvæðið er á fallegum stað við Andapollinn, lítilli tjörn á vinstri hönd við innkeyrsluna í bæinn. Á svæðinu eru sturtur, salernisaðstaða, þvottavél og rafmagn, en
losun fyrir húsbíla er hjá þjónustumiðstöð Olís, skammt frá tjaldsvæðinu. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er opin á sumrin í Íslenska stríðsárasafninu við Heiðarveg. Skemmtilegar gönguleiðir í fallegu umhverfi liggja meðfram byggðinni ofanverðri og upp með Búðarárgili. Íslenska stríðsárasafnið er við upprunalega herbragga ofarlega í bænum. Safnið gerir hernámsárunum einstök skil, bæði hvað atburði tímabilsins snertir og tíðaranda. Í miðbæ Reyðarfjarðar er m.a. verslunarmiðstöðin Molinn og Sesam brauðhús, sem er ekta handverksbakarí og kaffihús. Vestan við Molann er Tærgesen, eitt elsta hús Reyðarfjarðar og er þar rekið samnefndur veitinga- og gististaður. Ysta bryggjan, austan við Molann, nefnist Barkurinn og mótar enn fyrir seglskipi, sem var sökkt á þessum stað sem bryggjuundirstaða. Síðustu helgina í júní er hernámsins minnst með Hernámsdeginum og er þá m.a. efnt til setuliðsskemmtunar í Íslenska stríðsárasafninu.
Golfklúbbur Fjarðabyggðar rekur 9 holu golfvöll, skammt innan við þéttbýlið.
Reyðarfjörður er landfræðileg miðja sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og þaðan liggja leiðir til Eskifjarðar og Norðfjarðar í norðri og Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar í suðri.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 112